top of page

Grunnhlýðni hópur

Grunnhlýðni hópur
 

Námskeiðið er góður grunnur fyrir alla hundaeigendur að fara með hundinn sinn á. Það eru 7 verklegir tímar ásamt lokaprófi, samtals 8 tímar. Þar er farið yfir helstu hluti sem hundaeigendur þurfa læra. Kosturinn við að mæta í hóptíma er að umhverfisvenja hundinn. Á hverju námskeiði eru 6-8 manns. Hver hundur er skráður á námskeið og æskilegast er að einn einstaklingur fylgi hundinum gegnum námskeiðið en leyfilegt er að koma með einn gest og fylgjast með.

Two French Bulldogs
326885088_1268345144103971_540998677448239804_n.jpg

Verð og næstu námskeið

Námskeiðið kostar 42.000 krónur á hund

Verðum komin með húsnæði í byrjun sumars og þá fara hóptímar af stað.

Meðan við getum ekki boðið uppá hóptíma bendum við fólki á  grunnþjálfun í heimahúsi

Hvað er farið yfir á námskeiðinu

  • Lokka

    • Hvað er að lokka? það er þegar nammi er notað og hundurinn lokkaður í stellingar eins og leggstu, sestu, bælið/búrið, hælganga o.s.frv. Þegar hundurinn lærir það þá förum við að bæta skipunum við eins og sestu við skipunina þegar hundurinn sest.​

  • Sestu

  • Leggstu

  • Kyrr

  • Bælið/búrið

  • Flaður

  • Hælganga

    • Mikilvægt að hunsa allt í hælgöngu​

    • Þegar hundurinn er í hæl á hann ekki að flaðra upp um fólk, hitta hunda eða fólk nema eigandi leyfir það.

  • Nota búrið rétt

    • Hvernig gerum við það? það er gert með því að það sé öruggur staður fyrir hundinn, aldrei notaður sem skammarkrókur þá tengir hann neikvætt við búrið. ​

  • Innkall

    • Við gerum nokkrar innkallsæfingar sem eigendur geta farið með lengra. Stjórna áreiti og auka það þegar hundurinn er tilbúinn í það. Nota langann spotta til að leiðrétta hundinn þegar hann hlýðir ekki​

  • Áreiti

    • Í hundaþjálfun er mikilvægt að stjórna áreiti í hringum hundinn, þar að segja hljóðum, umferð á fólki, dýrum osfv.

    • Afhverju? því við viljum fulla einbeitingu á okkur sem erum að leiðbeina honum. Í áreiti verður erfiðara fyrir hundinn að einbeita sér.

    • Hvernig gerum við það? með því að byrja heima í stjórnuðu umhverfi og færa okkur svo kannski útí garð og gera æfingar þar, svo næst hundagerði með engum hund svo niður í hundagerði með hundum. Babysteps ​

  • Fyrirbyggja slæma hegðun

    • Fræðsla um hvað á að gera og hvað á ekki að gera.​

  • Verðlaun og leiðrétting

    • Verðlauna rétta hegðun og leiðrétta slæma hegðun​

  • Ekki verðlauna slæma hegðun

  • Mikilvægi þess að umhverfisvenja hundinn

  • Hverju þarf hundurinn minn á að halda

  • Hvernig byggir þú upp sjálfstraust hjá hundum

  • Mikilvægi þess að hundurinn sem með gott sjálfstraust og umverfisvaninn kemur í veg fyrir hegðunarvandamá

  • Fylgja eftir

  • Kenna mörk

bottom of page