top of page

Einstaklingsmiðuð þjálfun

Einstaklingsmiðuð þjálfun

thriggjamanada-fjarnamskeid-i-hundathjalfun-og-atferli-a-adeins-7-990-kr-kostar.jpg

Í einstaklingsmiðaðri þjálfun erum við að breyta hegðun. Sama hvort það sé slæm hegðun, taugaóöryggi, árásárgirni, hlýðni, æsingur, flaður, aðskilnaðarkvíði eða einhver önnur vandamál sem þarf að vinna með. Við byrjum á atferlismati til þess að fara yfir vandamálin, triggera og komast að rót vandans. Þegar það er komið er hægt að setja upp plan sem unnið er eftir. Það sem fólk græðir á þessu er einstaklingsmiðuð þjálfun, handleiðsleiðsla í þjálfun, æfingar sem byggðar eru á stigvaxandi æfingum í samræmi við hvað hundurinn og eigandinn ráða við, stjórna áreiti, þekkja þolmörk hundsins o.s.frv. Við gefum ykkur verkfæri í verkfærakistu til að vinna með hundinum ykkar. Eftir hvern tíma eru sett upp æfingaplan (heimavinna) sem eigandinn gerir með hundinum og svo er farið yfir það í næsta tíma hvernig gekk.

326885088_1268345144103971_540998677448239804_n.jpg

Verðskrá

þrjú skipti og atferlismat á 45.000 krónur

aukatími 15.000 krónur

Til að bóka sendu okkur línu á hundathjalfuntrausta@gmail.com  Facebook, Instagram eða bara hringja í síma 6631121

bottom of page