top of page

 Hundaþjálfun Trausta

Hundaþjálfari og atferlisfræðingur

327989989_8511014035635716_984978702400966843_n.jpg

Við bjóðum uppá frítt atferlismat

Hundaþjálfun Trausta vinnur eftir þjálfunaraðferð sem kallast "Ballance training" sem er samblanda af jákvæðri styrkingu og leiðréttingu. Við festum okkur ekki  í einni nálgum heldur viljum við velja nálgun sem hentar hverjum hund fyrir sig. Við leggjum mikið uppúr því að hundar séu með gott sjálfstraust og að umhverfisvenja hundinn. Almennt á eigandi að vera rólegur og yfirvegaður í þjálfun. Einnig er mikilvægt þegar verið er að kenna hundum að stjórna áreitinu til þess að það einbeiting sé á okkur. Enginn hundur er eins og þarf eigandi að læra inná hvað hentar sínum hundi, hvaða verðlaun hundurinn metur mest til þess að fá hundinn til að vinna fyrir þeim. Það eru alltaf heimaverkefni fyrir eiganda og hund eftir alla tíma og við viljum að eigandinn ljúki þjálfun með fleiri svör en spurningar.

Einkatímar

1

Atferlismat er einfaldlega tími til að hitta hugsanlegan viðskiptavin og hundinn þeirra. Við gerum þetta til að fá tækifæri til að ræða og sjá þarfir viðskiptavinarins. Einnig notum við þetta tækifæri til að meta og greina hvers kyns hegðunarvandamál hundurinn kann að hafa. Lykillinn að því að breyta hegðun er að finna rót vandans. 

2

Einstaklingsmiðuð þjálfun

Einstaklingsmiðuð þjálfun sem er fyrir hunda með hegðunarvandamál. Þetta eru tímar sem koma á eftir atferlismati. Sett er upp æfingaprógram sem hentar hund og eiganda með stigvaxandi æfingum (Babysteps)

3

Grunnhlýðni í heimahúsi

Grunnnámskeið fyrir hundaeigendur sem vilja fá grunninn að hundauppeldi. Þjálfari mætir í heimahús og vinnur með hundi og eiganda eftir ákveðnu prógrammi.  

Hóptímar

1

Grunnhlýðni

Grunnnámskeið er góð undirstaða fyrir hundaeigendur. Farið er yfir helstu skipanir, fylgja eftir skipunum, verðlaun á réttum tíma og margt fleira.

2

Hundaþjálfun fyrir börn

Börnum er kennt að vera ábyrgir hundaeigendur með því að vera ákveðin, uppbyggjandi leikir fyrir hund og barn. Einnig sett ábyrgð á börnin með heimaverkefnum.

3

Hvolpatímar

Hvolpatímar eru tímar sem nokkrir hvolpar koma saman og læra leika sér í stjórnuðu umhverfi. Nauðsynlegt fyrir alla hvolpa.

3

Taumgöngunámskeið

Í taumgöngunámskeiði er farið yfir hælgöngu, áreiti, halda hundinum rólegum. Einnig förum við í eigandann hvernig hann á að stjórna ferðinni.

bottom of page